Ketó Macadamiu nammi
María Krista deilir hér með okkur girnilegri uppskrift af macamaiu nammi sem er tilvalið fyrir þá sem eru á ketó mataræði.
Innihald:
- 100 g möndlumjöl NOW
- 50 g macadamiuhnetur NOW
- 60 g smjör ískalt
- 70 g sæta, sweet like sugar frá Good Good
AÐFERÐ BOTN:
Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél með nokkrum atrennum, athugið að hafa smjörið ískalt, deigið á að vera eins og mylsna.
Þjappið næst deiginu í smjörpappírsklætt form og bakið í 10-15 mín á 150° Kælið.
FYLLING:
- 180 g Monki hnetusmjör
- 60 g smjör
- 60 g fínmöluð sæta/ sweet like sugar frá Good Good
- 50 ml rjómi
- 1/2 tsk vanilludropar
AÐFERÐ FYLLING:
Hitið smjör og hnetusmjör saman í örbylgjuofni eða í potti þar til mjúkt. Þeytið sætu, rjóma og vanilludropum saman við með handþeytara.
Hellið blöndunni yfir kældan hnetubotninn.
SÚKKULAÐIHJÚPUR:
85 g súkkulaði, t.d. 85% eða 2 stk Choco Perfection Dark.
2 msk smjör
AÐFERÐ HJÚPUR:
Hitið súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Hellið yfir kælda hnetusmjörsfyllinguna og frystið.
Skerið í hæfilega bita. Gott er að strá grófu sjávarsalti yfir stykkin.
Uppskrift frá Maríu Kristu.
www.mariakrista.com