Ketó vöfflur
María Krista deilir hér með okkur uppskrift af girnilegum vöfflum sem er tilvalið fyrir þá sem eru á ketó mataræði.
Innihald:
- 120 g rjómaostur
- 4 egg
- 80 g möndlumjöl frá NOW
- 2 msk MCT olía
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 20 g Sweet like sugar
- 2 tsk vanilludropar
- 1/2 tsk Xanthan Gum frá NOW
Aðferð:
- Setjið allt hráefni saman í skál og þeytið saman, það er hægt nota góðan blandara í verkið en einnig er hægt að þeyta deigið saman með handþeytara.
- Hitið vöfflujárnið og látið deigið standa á meðan og “taka sig”
- Bakið svo vöfflurnar hverja á fætur annarri, þessi uppskrift gerir um 8 þykkar og flottar vöfflur. Svona ekta sunnudagskaffiskammtur.