Máttur Astaxanthin
Astaxanthin er eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar sem verndar frumur líkamans gegn alls konar neikvæðum áhrifum frá umhverfi okkar og lífsstíl. Andoxunarvirkni Astaxanthins er talin vera mun meiri samanborið við önnur andoxunarefni eins og C-vítamín, E-vítamín og beta-karótín.
Gæðavara
Astaxanthin frá NOW er unnið úr smáþörungum sem ræktaðir eru samkvæmt ströngustu gæða- og umhverfisstöðlum. Astaxanthin er svokallað karótenóíð efni sem smáþörungar framleiða, en sama efni er til að mynda að finna í grænmeti og ávöxtum.
Heilsufarsleg áhrif
Astaxanthin hefur fjölþætt heilsufarsleg áhrif og hafa rannsóknir meðal annars sýnt fram á eftirfarandi:
- Stuðlar að heilbrigðu oxunarálagi
- Styður við heilbrigt hjarta- og æðakerfi
- Hjálpar til við endurheimt eftir erfiðar æfingar
- Eykur mótstöðu gegn andlegri og líkamlegri þreytu
- Styður við heilbrigða öldrun
- Styður við ónæmiskerfið
- Styður við augnheilsu
Heilbrigð húð
Astaxanthin hefur verið rannsakað með tilliti til áhrifa á húðina og er talið stuðla að heilbrigði húðar með því að auka raka og teygjanleika hennar. Astaxanthin hefur meðal annars reynst vel gegn sólarexemi og er gjarnan ráðlagt fólki sem ferðast til sólarlanda, enda verndar það húðina gegn oxunarálagi.
Ávinningur af andoxunarefninu
Astaxanthin er einstakt og öflugt andoxunarefni og víðtæk heilsufarsleg áhrif þess hafa verið staðfest í fjölmörgum klínískum rannsóknum. Astaxanthin er gagnleg fæðubót til þess að stuðla að bættri heilsu samhliða heilsusamlegum lífsstíl.