Steinefnasölt í útivistina
Steinefnasölt (electrolytes) er blanda af lífsnauðsynlegum steinefnum s.s. natríum, kalíum, magnesíum og kalsíum ásamt fleiri steinefnum. Þegar þessi steinefni leysast upp í vatni þá mynda þau steinefnasölt, rafhlaðnar jónir sem eru líkamanum mikilvæg fyrir allar frumur, líffæri og líffærakerfi svo líkaminn geti starfað eðlilega. Við getum fengið steinefnasölt úr því sem við borðum og drekkum en í sumum tilfellum getur verið þörf á að bæta þau upp í bætiefnaformi. Steinefnasölt eru gjarnan mæld í blóðprufu ef þess er þörf og blóðgildi þeirra þarf að vera innan nákvæmra gilda svo líffærastarfssemin haldist í jafnvægi.
Hvaða hlutverki gegna steinefnasölt í líkamanum?
- Koma jafnvægi á vökabúskap líkamans
- Halda sýru og basa jafnvægi í blóði innan eðlilegra marka
- Stuðla að eðlilegum vöðvasamdráttum s.s. í hjartavöðva
- Senda taugaboð frá hjarta, vöðvum og taugafrumum til annarra frumna
- Taka þátt í endurnýjun vefja
- Hjálpa blóðinu að storkna
Hvað veldur ójafnvægi á steinefnasöltum í líkamanum?
Mikilvæg steinefnasölt geta tapast við miklar og erfiðar æfingar með svita og þá sérstaklega natríum og kalíum. Ef þú er að æfa reglulega í 60-90 mín eða lengur og ert að stunda mikla hreyfingu og íþróttir er líklegt að þú sért að tapa steinefnasöltum úr líkamanum. Aðrar ástæður sem geta valdið ójafnvægi á steinefnasöltum eru t.a.m. vökvatap út frá veikindum s.s. hita, krónískum niðurgangi eða uppköstum, ónæg inntaka vatns/vökva eða steinefna úr fæðu, inntaka á lyfjum s.s. vökvalosandi og hægðalosandi lyfjum. Eldra fólki er einnig sérstaklega hætt við ójafnvægi á steinefnasöltum. Það er nauðsynlegt að viðhalda góðu jafnvægi á steinefnasöltum og bæta upp skort þeirra í líkamanum ef þörf er en nýrun og ýmis hormón sjá til þess að halda söltum og vökvabúskap líkamans í jafnvægi.
Einkenni ef líkamann skortir steinefnasölt
- Þreyta
- Svimi
- Þrekleysi
- Vöðvakrampar og kippir
- Óreglulegur hjartsláttur
Heilsusamlegt og fjölbreytt mataræði veitir okkur í flestum tilfellum næga innöku á steinefnasöltum en lykilatriði er að drekka nóg af vatni og vökva og borða fæðu sem er rík af steinefnasöltum s.s. spínat, kalkún, kartöflur, baunir, avókadó, appelsínur, jarðarber og banana.
Í sumum tilfellum getur verið þörf á að taka inn steinefnasölt í bætiefnaformi en steinefnasöltin frá Now eru freyðitöflur sem hægt er að nota fyrir skjóta endurheimt vökva og vöðva sem hafa tapast á stífum æfingum eða eftir veikindi. Steinefnasölt eru líka gagnleg þeim sem eru á lágkolvetna eða ketó mataræði og fyrir þá sem eru að fasta reglulega en þegar kolvetna inntaka er mjög lág þá geta steinefnasölt tapast úr líkamanum.
Steinefnasöltin frá Now Foods fást sem dæmi hér í H verslun.
Höfundur: Ásdís Grasa