Uppáhaldsvörur LANGA
Þegar kemur að þjálfun, endurheimt og frammistöðu eru litlu atriðin oft það sem skiptir mestu máli til lengri tíma. Fyrir marga hlaupara og íþróttafólk verða fæðubótarefni hluti af daglegri rútínu, ekki sem skyndilausn heldur sem stuðningur við stöðugleika í frammistöðu, svefn og álag.
Við fengum Snorra Björnsson sem heldur úti einu vinsælasta hlaupa hlaðvarpi landsins, LANGA, til að deila með okkur þeim vörum sem hann mælir með fyrir hlaupara. Hér fer hann yfir sínar uppáhalds vörur frá NOW og hvernig þær hafa nýst honum í krefjandi æfingum og daglegu lífi.
Magnesium Glycinate & L-Theanine
Ef vinnuálagið, æfingamagnið eða stressið er byrjað að taka yfirhöndina þá er svefninn það síðasta sem við viljum missa út. Ég er búinn að taka magnesium glycinate fyrir svefn í mörg ár og komst fljótt að því að glycinate frá NOW var yfirburðar. Leynitrixið fyrir skotheldan svefn er magnesium glycinate + L-theanine í 1:1 hlutföllum og ansi rausnarlegum skammti. Ég gef ekki upp í hvaða skammtastærð ég er kominn, hún er líklega gegn læknisráði.
Beta Alanine
Alveg frá því að Matt Fraser, fimmfaldur heimsmeistari í CrossFit, talaði um að beta-alanine hafi gefið honum “þriðja lungað” í erfiðum keppnum hef ég notað það á erfiðum æfingum.
Magnesium & Calcium
Beinþéttnibomba. Eins og áður hefur komið fram er ég mjög hrifinn af magnesíum og það er ekki síðra að bæta við kalsíum í blönduna til að sjá til þess að beinin hafi allan þann stuðning sem þau þurfa undir miklu álagi.
Beet root hylki
Eitt af fáum fæðubótarefnum sem eru með sterk sönnunargögn á bakvið jákvæð áhrif á frammistöðu – og ég veit fyrir víst að margir af bestu íþróttamönnum landsins nota rauðrófuduft fyrir keppnir.





