Dúndraðu upp gleðihormónunum í skammdeginu

Nú þegar skammdegið er sem dimmast, og dagsbirtu nýtur ekki við nema örfáar klukkustundir þá verðum oft lítil í okkur. Smá leið og döpur með mikinn kvíða, tætt og tjásuð í streitu hversdagsins, illa sofin og einmanna ákváðum við að leia í verkfærakistu Röggu Nagla.

Þá er mikilvægt að dúndra reglulega upp gleðihormónum líkamans.

Óheilbrigð bjargráð eru snákaolía.

Margir nota óheilbrigð bjargráð til að fá vellíðunartilfinningu. Sælgæti, sjoppingtúra, Smirnoff og sígarettu.

Þessir hlutir verða vinur og hækja þegar þú upplifir neikvæðar tilfinningar.

Þeir dreifa huganum frá óþægilegu tilfinningunum um stundarsakir og við slökkvum á heilanum.

Sykur, salt og fita losa út gleðihormónin dópamín og serótónín á núlleinni og þetta veit skrokkurinn. Þess vegna öskrar hann á Hómblest, Maarud og lakkrísreimar þegar ergelsið streymir um æðarnar.

Ekki pissa í skóinn þinn með óhjálplegum bjargráðum.

Plús að sælan er svo skammvinn. Eins og að pissa í skóinn sinn. Rosa heitt og kósý í örfáar sekúndur. En svo verður ÍSKALT og enn óþægilegra en áður.

Matur, sjopping, sjúss og rettur sem bjargráð í tilfinningaróti býr til fleiri vandamál en þau leysa.
Því ofan á pirring, svekkelsi, frústrasjón bætist samviskubit, sektarkennd, svekkt sjálfsmynd.

Leitum eftir langvarandi vellíðan

Við viljum langvarandi vellíðan. Við viljum gleðihormónin sem lúra lengi í skrokknum.Oxýtócín. Serótónín. Endorfín. Dópamín.

Hvað eru þessar gleðisprengjur annars, og hvernig getum við stuðlað að losun þeirra oftar?

Serótónín er skapstjórnunarhormón.

Það er myndað úr amínósýrunni Tryptophan sem þarf að koma inn í líkamann í gegnum mataræðið og finnst helst í hnetum, kalkún, ostum, tófú og rauðu kjöti.

Serótónín hjálpar við að stjórna skapi og líðan, og hefur áhrif á svefn, matarlyst og meltingu.

Önnur hlutverk serótóníns eru:

  • Draga úr depurð
  • Kvíðastjórnun
  • Græðir sár
  • Viðheldur beinaheilsu

Þegar serótónín magnið er heilbrigt og eðlilegt er kvíðinn lengst úti í hafsauga, við erum hress og kát, til í tuskið, einbeitt og í góðu tilfinningajafnvægi.

Athafnir sem keyra upp serótónín.

  • Nudd
  • Sólarljós/ ljósameðferð
  • Vera utandyra
  • Heilsusamlegt mataræði
  • Skrifa í dagbók
  • Öll hreyfing
  • D-vítamín
  • Góður félagsskapur

Dópamín er vellíðunarhormónið

Taugakerfið sér um að losa dópamín í kjölfar hegðunar og athafna en það veitir skammtímavellíðan…. Einn, tveir og bingó.

Þegar líkaminn losar dópamín í miklu magni upplifum við vellíðan og verðlaunatilfinningu sem styrkir ákveðna hegðun í sessi.

Á móti kemur að lágt magn dópamíns í líkamanum veldur áhugaleysi og lítilli hvöt til að gera hluti sem flestir myndu valhoppa hæð sína yfir. 

Amínósýran L-Tyrosine spilar mikilvægt hlutverk í að framleiða dópamín, svo það er krítískt að hafa hana í bunkum í skrokknum.

Prótínrík fæða er besta uppsprettan, eins og kalkúnn, egg, mjólkurvörur, soja og nautakjöt.

Góðgerlar stuðla að heilbrigðri þarmaflóru en ákveðnar bakteríur í þörmunum framleiða dópamín sem hefur áhrif á skap og hegðun.

Athafnir sem losa dópamín

  • Regluleg hreyfing
  • Nægur svefn
  • Hlusta á tónlist
  • Þefa af nýbökuðum kökum
  • Borða súkkulaði
  • Hugleiða
  • Fá nægilegt sólarljós
  • Passa uppá járn, niacine, B6 og fólínsýru

Oxytocin er ástarhormónið

Framleitt í undirstúku heilans, en rannsókn frá árinu 2012 sýndi að pör sem eru að hefja sitt tilhugalíf hafa mun hærra magn af oxytocin í líkamanum en þeir sem eru einhleypir.

Þegar við tengjumst annarri manneskju, hvort sem það er rómantískt eða platónskt, þá framleiðir líkaminn vellíðunarhormónin dópamín, serótónín og oxytocine sem öll láta okkur líða vel andlega og líkamlega.

Nýbakaðar mæður framleiða til dæmis oxytocine í bílförmum.

Við erum slakari og rólegri þegar oxytocine er hátt í líkamanum.

Oxytocin hefur áhrif á ýmsar tilfinningar:

  • Samkennd
  • Traust
  • Einkvæni
  • Jákvæð samskipti

Það sem losar Oxytocin:

  • Horfa í augun á annarri manneskju
  • Faðma einhvern
  • Líkamleg snerting
  • Veita einhverjum óskipta athygli
  • Borða góðan mat saman
  • Þefa af ilmolíum
  • Finna sólina í andlitinu
  • Kynlíf
  • Kúra og knúsast

Endorfin náttúrulegur verkjastillir

Orðið „ENDORPHINE“ samsett úr endogenous sem þýðir í líkamanum og morphine sem er verkjastillir af ætt ópíóða.

Endorfín eru próteinpeptíð sem heiladingull og undirstúka framleiða þegar við gerum eitthvað sem veitir okkur gleði og hamingju.

Flestir þekkja vímuna sem við finnum eftir erfiða æfingu, eða hvernig okkur líður eftir að hafa hlegið í rússíbana. 

Hlutverk endorfína eru:

  • Að draga úr verkjum
  • Auka gleði og vellíðan
  • Draga úr streitu, depurð og kvíða
  • Bæta skap
  • Auka sjálfstraust
  • Draga úr bólgumyndun

Athafnir sem stuðla að losun endorfína:

  • Hressandi æfing
  • Dansa
  • Hlaupa
  • Hlæja dátt
  • Nálastungur
  • Dökkt súkkulaði
  • Stunda kynlíf

Það er mikilvægt fyrir góða andlega heilsu að framkvæma daglega athafnir sem láta okkur líða vel og framleiða allar þessar náttúrulegu gleðipillur líkamans.

En því miður eru margir of uppteknir við að sækja og skutla, gera og græja að þeir gleyma að setja sjálfan sig í forgang með að hitta vinina, fara í heitt bað, göngutúr í náttúrunni eða bara hoppa á trampólíni með krökkunum.

Góð bætiefni í skammdeginu

  • Góðgerlar
  • Rhodiola
  • D-vítamín
  • Omega-3 fitusýrur

Ljósmyndari : Aldís Pálsdóttir

 

  • Ragga Nagli
  • Aðrar greinar
Ragga Nagli Höfundur

Ég heiti Ragnhildur Þórðardóttir. Sálfræðingur, pistlahöfundur, einkaþjálfari og hlaðvarpari.

web
http://www.ragganagli.com
email
ragganagli@nowfoods.is
follow me
  • Súkkulaði próteinbúðingur Naglans
    01/09/2023
    Ragga Nagli
  • Ragga Nagli
    Ragga Nagli – Bætiefni fyrir konur sem rífa í járn og spretta úr spori
    01/09/2023
    Ragga Nagli
  • Ragga Nagli
    Dúndraðu upp gleðihormónunum í skammdeginu
    27/01/2023
    Ragga Nagli
  • Góðgerlar
    17/05/2021
    Ragga Nagli
  • Kortér í kulnun – Streita og bætiefni
    20/04/2020
    Ragga Nagli

Vörur í færslu

  • D vítamín veganD2-1000 Vegetarian
  • D-3 & K-2 vítamínD3 & K2
  • D3 & K2 liposomal sprey
  • D3 1000 IU
  • D3 1000 IU tuggutafla
  • D3 2000 IU
  • D3 fljótandi
  • D3 Liquid extra strength
  • Rhodiola burnirótRhodiola 500 mg
  • Omega 3Omega 3
  • Probiotic 10-50 Billion
  • Probiotic Defense-1Billion
  • Probiotic Gl Clinical
  • Probiotic Women's-20 Billion
  • Probiotic-10 25 Billion

© Icepharma hf. Allur réttur áskilinn. Icepharma hf. er viðurkenndur dreifingaraðili NOW á Íslandi. Icepharma is the authorized distributor of NOW in Iceland.

Log In

Become a part of our community!
Registration complete. Please check your email.
Lost your password?

Create an account

Welcome! Register for an account
The user name or email address is not correct.
Registration confirmation will be emailed to you.
Log in Lost your password?

Reset password

Recover your password
Password reset email has been sent.
The email could not be sent. Possible reason: your host may have disabled the mail function.
A password will be e-mailed to you.
Log in
×