Frá morgni til kvölds með Naglanum
Hvernig er dæmigerður dagur í mínu lífi í vinnu, æfingum og mat.
Ég er algjör morgunhani og er yfirleitt komin á fætur milli 6 og 6:30.
Stundum fyrr ef það er mjög annasamur vinnu dagur framundan en ég vinn sem sálfræðingur í Kaupmannahöfn þar sem ég er með mína eigin stofu, sem og fjarsálfræðiviðtöl í gegnum netið.
Morgunmatur.
Morgunmaturinn minn er alltaf eins.
Obama var eitt sinn spurður af hverju hann var alltaf í bláum jakkafötum. Hann svaraði að þá er einni ákvörðun færra yfir daginn. Það er sama með mig og morgunmatinn. Það er alltaf haframjöl og egg. En í allskonar varíasjónum enda er haframjöl eins og auður strigi málarans sem getur breyst í allra kvikinda líki.
Bakaður grautur. Kaldur grautur. Grautartriffli. Næturgrautur með chia fræjum. Heitur grautur á gamla móðinn. Svo toppa ég grautinn alltaf með ávöxtum og hnetu, kókoshnetu eða möndlusmjöri.
Himnesk hollusta hnetusmjörið er í miklu uppáhaldi, bæði gróft og fínt. Monki kasjúhnetusmjörið er algjör dýrð en það sem tryllir bragðlaukana er hvíta möndlusmjörið þeirra. Það er eins og fljótandi marsipan og ég gæti alveg klárað heila dollu í einu vetfangi ef matargatið fengi að leika lausum hala.
Svo hef ég mig til fyrir æfingu og c.a 20 mínútum fyrir æfingu fæ ég mér Amino power pre-workout frá NOW en undanfarið hef ég verið henda matskeið af rauðrófudufti og kreatíni frá NOW út í, sem hvorutveggja hafa rifið upp þyngdirnar í lyftingunum hjá mér. Kreatín er eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið á markaðnum og eykur ATP sem er orkuefnið í hvatberunum. Rauðrófuduft eykur súrefnisupptöku í vöðvum svo við getum æft lengur og kreist út nokkrar endurtekningar í viðbót.
Hvernig æfi ég?
Æfingarnar mínar eru fjölbreyttar og mismuandi frá degi til dags. Alltaf ótrúlega skemmtilegar, krefjandi en yfirstíganlegar. Ég hlusta á líkamann og fer eftir orkustigi dagsins. Suma daga er ég eins og Duracell kanínan og til í blóðuga lófa, súrefniskút og kalk uppá bak.
Í fósturstelllinguna á eftir að sjúga puttann.
En suma daga er ég þreytt, stressuð og orkulítil og þá verð ég lítil í mér og vil bara rólegri æfingar sem eru samt alltaf krefjandi.
Mínar æfingar eru sambland af Crossfit, ólympískum lyftingum í bland við hefðbundnar styrktaræfingar. Svo finnst mér rosa gaman að taka stutta en snarpa hlaupaspretti þar sem ég keyri mig alveg út í stuttan tíma og hleyp eða labba á rólegra tempói inni á milli. Athyglisbresturinn minn hreinlega leyfir ekki langar vegalengdir því ég verð svo pirruð að vera föst í einu verkefni í langan tíma. Ég hef til dæmis aldrei á ævinni hlaupið lengra en 10 kílómetra.
Eftir æfingu fæ ég mér alltaf bæði kolvetni og prótín til að hefja prótínmyndun í vöðvunum sem fyrst og koma af stað viðgerðarferlinu. Nýbakað brauð eða bolla með osti og sultu verður oftast fyrir valinu. Og auðvitað minn heimsfræga hnausþykka prótínsjeik úr NOW Bone broth prótíndufti. En útí hann fer 1 skófla af Bone Broth, 1 tsk Xanthan gum frá NOW (þykkingarefni). French vanilla dropar. Og haugur af spínati og toppkáli (fæst í Nettó).
Síðan hjóla ég í vinnuna. Þar sit ég á sálfræðistofunni minni í kósý samtalsherbergi með mínum skjólstæðingum.
Hádegis- og kvöldmatur
Alltaf samsettur úr prótíni, kolvetnum, fitu og haug af grænmeti og salati.
Prótíngjafarnir mínir eru mestmegnis dauðar skepnur: kjöt/fiskur/kjúklingur og er líka mjög dugleg að borða innmat eins og hjörtu, lifur og nýru. Ólíkt mörgum þá elska ég áferðina og bragðið, og ekki skemmir fyrir að þessar afurðir eru orkubombur og stútfullar af járni, steinefnum og vítamínum.
Ég er með mjög jákvæðar hugsanir um að minnka kjötneyslu útaf umhverfisástæðum, sem mætti alveg ganga betur í verki. En ég réttlæti þetta kjötslafur mitt með að ég á ekki bíl og fer allra minna ferða á hjólgarminum mínum. Þess vegna hrjáir kolefniskvíði mig ekki sérstaklega.
Flókin kolvetni fæ ég úr kartöflum, sætum kartöflum, rótargrænmeti, hrísgrjónum, cous cous, byggi, hirsi og haframjöli.
Ég elska hýðishrísgrjóna blönduna frá Himneskri hollustu með brúnum og villtum grjónum.
Mér finnst rosa gott að hræra ristaðar kjúklingabaunir frá Himneskri Hollustu út í hrísgrjónin.
Þriðjungur af disknum mínum er yfirleitt hlaðinn af grænmeti og ég á svo margar uppáhalds uppskriftir eins og bakað rósakál með beikonbitum, grillað brokkolí, heilt bakað blómkál með sinnepi og timjan, tómatfyllt eggaldin og hvítlaukssteiktir sveppir.
Fita er olía út á salat, gvakamólí úr avocado, eða satay sósu úr Monki hnetusmjöri, muldar hnetum/fræjum yfir salat eða hrísgrjón.
Fræblandan frá Himnesk hollustu er til dæmis dásamleg út á salat.
Kvöldsnarlið er yfirleitt kókosjógúrt frá Abbott Kinney með hindberjabragði og út í hana löðra ég matskeið af Monki kasjúsmjöri sem er guðsgjöf til mannkyns.
Eða ég sneiði niður epli dýft í möndlusmjör og yfir það set ég vænan dass af Soyatoo hrís sprauturjóma… og skammast mín ekkert fyrir það.
Bætiefnin
Bætiefnin sem ég nota eru EVE multivitamin, járn, B12, góðgerlar, C-vítamín. Liquid multi, Dairy digestive, D3 dropar og rhodiola.
- B12 er algjör lífsnauðsyn fyrir mig. Æfingar á hárri ákefð spæna nefnilega upp birgðirnar af B12 í líkamanum og um leið og ég fer að finna fyrir orkuleysi þá dúndra ég í mig og orkan keyrist upp. B12 er ekki búið til í líkamanum og við þurfum að fá það úr dýraafurðum eða bætiefnum. Líkaminn geymir það ekki svo við þurfum að taka það reglulega. Ég nota Ultra B12 vökva eða sprey frá NOW og læt liggja undir tungunni í 30-60 sekúndur.
- Ég hef tilhneigingu að verða lág í járni, og tek því járntöflur eða járnmixtúru frá NOW daglega.
- C-vítamín er mikilvægt samhliða járni til að hámarka upptöku.
- Rhodiola (burnirót). Hefur verið leikbreytir fyrir mig að tækla og vinna úr streitu. Líf mitt tók skarpa borgarstjórarbeygju þegar ég byrjaði að dúndra Rhodiola í mig. Rhodiola er svokallað adaptogen sem lækkar kortisólið ef það er of hátt og styrkir mótstöðu við streituáreitum.
- Dairy digestive tek ég alltaf með máltíð sem inniheldur mjólkurvörur því ég er smá viðkvæm fyrir sumum mjólkurvörum. En ef ég dúndra einni svona lufsu í mig er mallinn til friðs.
- Góðgerlar byggja upp öfluga og heilbrigða þarmaflóru sem skiptir miklu máli, bæta meltingu, draga úr fæðuofnæmi og efla ónæmiskerfið.
- NOW Eve fjölvítamín eða Liquid multi sem minnir mig á Sana Sól í gamla daga og fortíðarþráin hríslast niður hryggjarsúluna þegar það rennur niður vélindað.
- D3 vítamín fyrir ónæmiskerfið og styrk og heilsu beina. Sem betur fer slatti af sól í Danmörku yfir sumartímann en yfir grámyglaðan veturinn dúndra ég í mig NOW D-vítamín dropum.
- Fyrir svefn hendi ég síðan í mig L-glutamine fyrir þarmaflóruna en þetta er sú amínósýra sem finnst í mestu magni í líkamanum og gegnir lykilhlutverki að styrkja ónæmiskerfið og búa til filmu innan á þarmaveggina. Svo tek ég tarnir með magnesíum fyrir dýpri svefn og hámarks endurheimt í vöðvum yfir nóttina. Ég nota Magnesium og Calcium frá NOW til að fá líka kalk sem er svo mikilvægt fyrir okkur kvensurnar.
Verslaðu með Naglanum
Hér eru þær vörur og matvæli í Nettó sem ég elska að borða og gefa mér samtímis urlandi tilhlökkun fyrir máltíðinni og gæðanæringu til að hámarka bæði andlega og líkamlega heilsu.
Til að við höldumst í heilsusamlegum lífsstíl þurfa okkar daglegu máltíðir að veita gleði í sál og líkama. Því það endist enginn á heilsubrautinni þegar kvöldmaturinn býður upp á skraufþurra bringu og aumt salatblað. Það þarf að vera partý í munninum á hverjum degi.
Mín lífsspeki er enginn matur er á bannlista nema það sem fer illa í líkamann, eða mér finnst vondur á bragðið. Ef eitthvað finnst ekki á listanum er það einfaldlega því hann uppfyllir þessi tvö skilyrði.
- Ragga Nagli
- Aðrar greinar
Ég heiti Ragnhildur Þórðardóttir. Sálfræðingur, pistlahöfundur, einkaþjálfari og hlaðvarpari.
-
01/09/2023
-
17/05/2021
-
20/04/2020
Vörur í færslu
- C-1000 Rose Hips
- B-12 Ultra Liquid
- B-12 Vítmín Liposomal Spray
- Beet Root Powder
- Chicken Bone Broth prótein
- Creatine Monohyd 500gr
- D3 2000 IU
- Dairy Digest Complete
- Eve Fjölvítamín
- Iron Complex
- Iron Liquid
- Xanthan Gum Duft
- Stevia French Vanilla
- Probiotic-10 25 Billion
- Rhodiola 500 mg
- Magnesium/Calcium 2:1
- L- Glutamine Powder
- L-Glutamine Powder
- Liquid Multi Vitamin Wild Berry
- Chicken Bone Broth prótein