Now logo
  • Bætiefni
    • Vítamín
    • Jurtir
    • Fitusýrur
    • Gerlar og trefjar
    • Steinefni
    • Prótein
    • Kollagen
    • Önnur bætiefni
  • Sportvara
    • Endurheimt
    • Prótein
  • Matvara
    • Bakstursvara
    • Drykkir
    • Hnetur
    • Sætuefni
  • Snyrtivara
    • Andlitsumhirða
    • Annað
    • Burðarolía
    • Hárumhirða
    • Líkamsumhirða
  • Ilmolíur
    • Hreinar ilmolíur
    • Ilmolíu blöndur
    • Ilmolíu sett
    • Ilmolíulampar
  • Blogg
    • Uppskriftir
    • Greinar
  • Now teymið
    • Ásdís Ragna
    • Guðrún Brá
    • Indíana
    • ITS Macros þjálfun
    • Ragga Nagli
  • Um Now
    • Hafðu samband
Search
Generic filters
Exact matches only
backround

Kollagen í kroppinn þinn

Það eru fáir betur til þess fallnir en Ásdís Grasa eins og hún er gjarnan kölluð að setja saman næringarríka hristinga enda hannað og hrist þá saman ófáa í gegnum tíðina. Ásdís býr yfir botnlausri visku þegar kemur að heilbrigðum lífsstíl og hollri næringu.

Þegar Ásdís býr sér til góðan heilsudrykk segist hún leggja áherslu á að hafa grunninn saman settan af próteini, trefjum og fitu. “Ég bæti svo yfirleitt við smá sætu í formi ávaxta og eða stevíu í litlu magni ef mér finnst það þurfa. Eins nota ég gjarnan Acacia fiber trefjarnar sem gefa góða seddu tilfinningu. Svo hef ég notað Collagn duftið frá Now lengi.”

Hvað er kollagen?

Kollagen er eitt helsta uppbyggingar prótein líkamans en það má líkja því við lím sem heldur líkamanum saman. Það sér til þess að vefir haldist sterkir saman og er að finna m.a. í vöðvum, beinum, húð, sinum og er einnig eitt aðal uppbyggingarefni húðar, hárs og nagla. Líkaminn framleiðir sjálfur kollagen sem fer minnkandi eftir 25 ára aldur.

Kollagen er að finna aðallega í dýraafurðum s.s. kjöti, fisk, kjúkling, beinaseyði og eggjahvítum. Það má einnig taka inn í duftformi og mikilvægt er að það sé ‘hydrolyzed collagen’ en þá hafa amínósýrurnar verið brotnar niður og frásogast mun betur í meltingarvegi. Einnig er gott að taka C vítamín aukalega eða passa upp á fá ríkulegt magn af C vítamíni úr fæðunni samhliða kollagen inntöku þar sem það gegnir mikilvægu hlutverki í framleiðslu og nýtingu kollagens. Hreint kollagen í duftformi er t.d. hægt að bæta út í safa, kaffi, grauta, jógúrt, þeytinga og út í bakstur.

  • Now Collagen duft
    Kollagen duft

Kakó kollagen latte

  • 1 bolli heitt kaffi eða soðið vatn
  • ½ msk kakóduft frá Muna
  • ½ tsk kanill frá Muna
  • 1 msk kollagen protein Now
  • 1 msk hampfræ Muna
  • 3 dropar English toffee stevia Now
  • ½ msk MCT olía mocha/chocolate Now
  • Öllu skellt í blandara.

kollagen latte

Yngjandi rauðrófu drykkur

  • 1 bolli möndlumjólk sykurlaus frá Isola
  • 1 skeið Collagen Peptides Powder frá Now
  • 1 msk hörfræ frá MUNA
  • 3 dropar Frensh Vanilla Stevia frá Now
  • ½ -1 msk Acai berjaduft
  • 1 hnefi frosin lífræn hindber
  • ½ msk Beet Root duft frá Now
  • Öllu skellt í blandarann.

kollagen rauðrófu

  • Ásdís Grasa
  • Aðrar greinar
Ásdís Grasa Höfundur

Ég er meðlimur í helstu fagfélögum grasalækna, National Institute of Medical Herbalists og College of Practioners of Phytotherapy. Starf grasalæknis felst í því að meðhöndla einkenni og kvilla á heildrænan og náttúrulegan hátt og horfa á líkamann sem eina heild og bæta almenna starfsemi líffærakerfa.

email
asdisgrasa@nowfoods.is
follow me
  • Íþróttabætiefni fyrir hlaupara
    11/06/2025
    Ásdís Grasa
  • Kollagen kúlur
    Jóla kollagen kúlur
    30/11/2022
    Ásdís Grasa
  • kollagen latte
    Kollagen í kroppinn þinn
    27/01/2022
    Ásdís Grasa
  • Hollari Kókóstoppar
    27/11/2020
    Ásdís Grasa
  • Hvað er til ráða gegn frjókornaofnæmi?
    10/06/2020
    Ásdís Grasa

Vörur í færslu

  • Collagen Peptides Powder
  • RauðrófuduftBeet Root Powder
  • MCT Olía Chocolate Mocha
  • english toffeeStevia English Toffee
  • french vanilla stevíaStevia French Vanilla
Tags: kollagen uppskrift

© Icepharma hf. Allur réttur áskilinn. Icepharma hf. er viðurkenndur dreifingaraðili NOW á Íslandi. Icepharma is the authorized distributor of NOW in Iceland.

Log In

Become a part of our community!
Registration complete. Please check your email.
Lost your password?

Create an account

Welcome! Register for an account
The user name or email address is not correct.
Registration confirmation will be emailed to you.
Log in Lost your password?

Reset password

Recover your password
Password reset email has been sent.
The email could not be sent. Possible reason: your host may have disabled the mail function.
A password will be e-mailed to you.
Log in
×